Wednesday, January 21, 2009

Skyldan kallar

Pólitískur gamanleikur

Hlusta

Friday, November 28, 2008

Algleymi


„Og eins og í tryllum af öðru tagi er lesandinn áfjáður í að komast að því hvað gerðist [...] Í sögunni er svo þessi gleymska og vitundarbrenglun sett í samhengi við skammtafræði svo úr verður skemmtileg pæling um tímaferðalög, skáldskap, ímyndun, heilaskaða og sérkennilega afkima skammtafræðinnar.“
Gunnþórun Guðmundsdóttir, Bókmenntir.is

„Ögrandi skáldsaga [...] Algleymi [er], ásamt tveimur fyrri sögum höfundarins, sannkallað brautryðjendastarf. Hermann Stefánsson er í óðaönn við að innleiða bókmenntagrein sem er áður óþekkt í íslenska bókmenntakerfinu“
Hjalti Snær Ægisson, Víðsjá

"Stíllinn, orðfærið og myndmálið er kraftmikið og skemmtilegt“
Fríða Björk Ingvarsdóttir, Lesbók Morgunblaðsins

„Að Hermann skrifi skemmtilegar bækur
veit skrattinn, þetta er orðinn alger kækur.
Nú út er komin enn ein snilld í safnið
en andskotinn, ég man víst ekki nafnið!“
Jón Hallur Stefánsson, rithöfundur

„Var að klára bókina þína; hún er hættulega góð.“
Vigdís Grímsdóttir, rithöfundur, Facebook

„Frábær bók.“
Thomas Knudsen, bangsi, Facebook

„Hermann Stefánsson hefur skrifað skáldsögu sem þið verðið að lesa.“
Þröstur Helgason, bókmenntafræðingur, ritstjóri og rithöfundur

„Algleymi - besta bók í heimi!“
Gísli Magnússon, tónlistarmaður

*****

Guðjón Ólafsson vaknar á sjúkrahúsi og hefur misst minnið. Hvað gerðist? Lenti hann í slysi? Var það slys? Hvaða ókunni maður bjargaði lífi hans?

Í þessum fjöruga hugmyndatrylli opnast lesandanum smám saman ógnvænlegur heimur þar sem dularfullar ofsóknir virðast viðgangast, lykilatvik úr mannkynssögunni birtast í nýju ljósi, hulunni er svipt af dulmögnuðu handriti frá miðöldum, það brestur á með æðisgengnum flótta – og inn í þetta blandast mesta eðlisfræðitilraun allra tíma sem fram fer í agnahraðli CERN í Sviss.
Algleymi er ný skáldsaga eftir Hermann Stefánsson, einn fyndnasta og frumlegasta rithöfund okkar daga.

Algleymi fæst í öllum bókabúðum

ISBN: 978 9979 657 38 5
VERÐ: 4.480 krónur
KÁPA: BJARNEY HINRIKSDÓTTIR. PRENTUÐ Í ODDA.

*****

Um höfund á bókmenntavefnum:
http://bokmenntir.is/rithofundur.asp?cat_id=1400&author_id=123&lang=1

Bjartur:

http://bjartur.is/?i=6&f=4&o=136

Kaupa bók á vef Bóksölu stúdenda:

http://www.boksala.is/DesktopDefault.aspx/tabid-8/prodid-48584/

Fæst einnig hjá Bjarti, Bræðraborgarstíg 9

Saturday, March 31, 2007

Að komast burt

Hver er það sem ekki hefur þráð að komast burt, burt úr „loftleysinu og sjálfsánægjunni, hroka smádjöflanna, siðferðisdýrð þrjótanna; burt frá hinni sæluríku fylgispekt og hinu dáða uppburðaleysi og hinni guðdómlegu hræsni; burt frá allsleysi andans og doða lífsins… “.

Ljóðið "Að komast í burt" birtist í Fáein ljóð, 1977, Reykjavík. Sigfús Daðason tileinkaði það Arthur Rimbaud.